Verðskrá

Útfararþjónusta hjá Útfararstofu Garðabæjar kostar á bilinu kr. 89.500-195.500,-

Útfararþjónusta ber ekki vsk og hægt er að semja um greiðslufyrirkomulag.

Hér að neðan má sjá verð á öðrum þáttum sem aðstandendur þurfa að huga að.

Kistur og duftker Verð
Hvít kista kr. 98.000-195.500 m/vsk
Eikarkista kr. 230.000-260.000 m/vsk
Furukista kr. 198.000-229.000 m/vsk
Sérmáluð kista kr. 135.000-178.000 m/vsk
Sæng, koddi og blæja kr. 18.500 m/vsk
Líkklæði kr. 11.600 m/vsk
Duftker kr. 12.500-54.000 m/vsk

Útfararstofa Garðabæjar gefur kistu undir fóstur og börn 16 ára og yngri.

Viðbætur og skreytingar Verð
Kross-púlt á leiði (án skiltis) kr. 15.200 m/vsk
Skilti á kross-púlt kr. 9.500 m/vsk
Blómskreyting á kistu kr. 25.000-39.000 m/vsk
Altarisblóm kr. 7.000-14.000 m/vsk
Krans kr. 28.000-38.000 m/vsk
Sálmaskrá 100 stk kr. 54.000 m/vsk (síðan eftir fjölda og útliti)

Sé, óskað eftir að hafa íslenska fánann á kistunni v/útförina, leggur Útfararstofa Íslands hann til, að kostnaðarlausu. Ekki eru sett blóm ofan á fánann.

Tónlist Verð
Orgelleikur v/kistulagningu kr. 33.508 m/vsk
Orgelleikur v/útför án einsöngs/einleiks kr. 45.120 m/vsk
Orgelleikur v/útför með einsöng/einleik kr. 67.037 m/vsk
Orgelleikur fyrir útför kr. 33.508 m/vsk
Orgelleikur – æfingajald kr. 28.000-38.000 m/vsk
4 manna kór kr. 166.535
6 manna kór kr. 212.223
8 manna kór kr. 267.016
10 manna kór kr. 308.779
Einsöngvari og einleikarar kr. 50.000-150.000 miðað við 1-3 lög, misjafnt eftir flytjanda.

Ef einn söngvari syngur öll lögin við útförina er kostnaðurinn yfirleitt samkomulagsatriði. Þá er gott að taka það fram að enginn vsk reiknast á tónlist en sé útför um helgi eða á öðrum frídögum hækka taxtar tónlistarfólks um 45%. Verð miðast við taxta félags organista og FÍH.

10% umsjónargjald reiknast vegna tónlistar.