Gátlisti

Þegar ástvinur fellur frá stendur fjölskyldan og aðstandendur frammi fyrir mörgum mikilvægum ákvörðunum á erfiðum tíma. Til þess að auðvelda þetta ferli höfum við sett saman gátlista sem tekur saman helstu atriði sem þarf að huga að við undirbúning útfarar.

Við hvetjum aðstandendur til að fara vandlega yfir listann og merkja við þau atriði sem eiga við í hverju tilfelli. Gátlistann má nýta bæði sem yfirlit og til að halda utan um framvindu skipulagsins.

  • Hafa samband við útfararstjóra.

  • Útfararstjóri sér um að flytja þann látna af dánarstað í líkhús.

  • Aðstandendur eða útfararstjóri hafa samband við prest/athafnarstjóra.

  • Útfararstjóra gefið upp fullt nafn, lögheimili, kennitölu, dánardag og dánarstað þess látna, nafn nánasta aðstandanda, heimilisfang, kennitölu og síma.

  • Dánarvottorð fengið og andlát tilkynnt til sýslumanns.

  • Flutningur á kistu út á land eða utan af landi.

  • Flutningur á kistu til landsins eða frá landinu.

  • Athuga hvort einhverjar óskir liggi fyrir frá þeim látna.

  • Ákveða kistu og líkklæði.

  • Ákveða hvort/hvernig snyrta á þann látna.

  • Ákveða hvort kistulagningarbæn skuli fara fram.

  • Ákveða tímasetningu og stað fyrir kistulagningarbæn.

  • Ákveða hvort tónlist skuli vera við kistulagningarbæn.

  • Andlátstilkynningar

  • Ákveða tímasetningu og stað fyrir útför.

  • Upplýsingar um dags- og tímasetningu.

  • Ákveða organista, kór, einleik, einsöngvara, eða annað listafólk.

  • Ákveða tónlist við útför.

  • Upplýsingar fyrir prest/athafnarstjóra vegna minningarorða.

  • Ákveða skreytingar eða fána.

  • Blóm á altari.

  • Blóm og kransar frá aðstandendum.

  • Blóm og kransar afþakkaðir.

  • Ákveða hve margir bera kistu við athöfn og í kirkjugarði.

  • Ákveða hvort bera eigi blóm og kransa við athöfn og í kirkjugarði.

  • Ákveða hvort gera eigi sálmaskrá.

  • Ákveða erfidrykkju og gestabók.

  • Athuga með trékross og skilti á leiði.

  • Athuga með legstein og áletrun.

  • Athuga með þakkarkort/tilkynningu.

  • Athuga útfararstyrk frá stéttarfélagi eða félagsþjónustu.