Undirbúningur

Hér að neðan má sjá greinargóða lýsingu á því sem þarf að huga að við undirbúning útfarar. Aðstandendur ræða ýmist fyrst við útfararstjóra eða prest/athafnastjóra. Oftast er leitað til sóknar- eða safnaðarprests, en aðstandendur ráða því sjálfir hvaða prestur/athafnarstjóri sér um útförina. Gefa þarf útfararstjóra upp fullt nafn þess látna, lögheimili, kennitölu, dánardag og dánarstað. Einnig nafn nánasta aðstandanda, heimilisfang, kennitölu og símanúmer.

Líkflutningur

Útfarstjóri flytur þann látna af dánarstað til varðveislu í líkhúsi. Ef flytja þarf þann látna út á land, utan af landi, til útlanda eða til landsins getur útfararstjóri séð um þann flutning.

Óskir frá þeim látna

Aðstandendur ættu að ganga úr skugga um hvort einhverjar óskir frá hinum látna liggi fyrir, sem beri þá að virða.

Andlát og útför auglýst

Aðstandendur auglýsa oft andlát og útför í útvarpi eða blöðum. Ef útförin fer hins vegar fram í kyrrþey þá er yfirleitt auglýst eftir að athöfnin er afstaðin.

Kista og líkklæði

Aðstandendur geta valið um kistur. Hvítar kistur eru algengastar, en fleiri gerðir eru til. Ákveða þarf líka í hvaða klæðnaði sá látni skuli vera. Líkklæði útfararstofunnar eru hvít náttföt og sokkar á karlmenn en hvítur náttkjóll, undirföt og sokkar á konur. Útfararstjóri gengur frá þeim látna í kistu og snyrtir ef með þarf.

Legstaður

Sé ekki til frátekinn legstaður verður nýjum úthlutað. Hægt er að fá frátekinn legstað við hlið þess látna. Sé hins vegar til frátekinn legstaður skal sá sem er skráður fyrir honum (sé ekki um þann látna að ræða) gefa skriflegt leyfi um að þar megi grafa.

Dánarvottorð

Læknir gefur út dánarvottorð. Ef krufning hefur hins vegar farið fram gefur krufnings- eða héraðslæknir það út. Aðstandendur fara með vottorðið til sýslumanns og tilkynna andlátið. Sýslumaður gefur út útfararleyfi sem skal afhent þeim presti er sér um útförina.

Legstaður

Sé ekki til frátekinn legstaður verður nýjum úthlutað. Hægt er að fá frátekinn legstað við hlið þess látna. Sé hins vegar til frátekinn legstaður skal sá sem er skráður fyrir honum (sé ekki um þann látna að ræða) gefa skriflegt leyfi um að þar megi grafa.

Kistulagningarbæn

Tímasetning og staður. Aðstandendur ákveða í samráði við prest/athafnarstjóra og útfararstjóra hvar, hvenær og hvort kistulagning skuli fara fram. Algengast er að hún fari fram, en það er ekki alltaf.

Tónlist

Aðstandendur ákveða, í samráði við prest/athafnarstjóra og útfararstjóra, hvort og þá hvaða tónlist sé flutt við útförina. Útfararstjóri mun útvega það tónlistarfólk sem óskað er eftir, svo sem organista, sönghópa, einsöngvara, einleikara eða annað listafólk. Einnig þarf að ákveða hvort tónlist sé flutt við kistulagninguna.